• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Vormót UMSE

Síðastliðinn fimmtudag fór hópur af krökkum til Dalvíkur og keppti á Vormóti UMSE.  Foreldrar keyrðu á staðinn og Valgerður og Inga Vala voru með til halds og trausts.  Nokkrir dropar féllu í upphafi mótsins og hafgolan lét aðeins finna fyrir sér en flestir náðu að hlaupa sér til hita.Ófá persónuleg met voru slegin og margir krakkanna röðuðu sér í efstu sætin í hinum ýmsu greinum.  Góð stemming var á mótinu og var sérstaklega gaman að sjá hvað foreldrarnir voru liðtækir í að hjálpa til og hvetja krakkana.  Að móti loknu fengu allir þátttökupening.  Þar sem mótið hafði dregist aðeins voru einhverjir farnir heim áður en verðlaunin voru veitt.  Þeir geta haft samband við Ingu Völu til að fá sína viðurkenningu.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA