Hafdís Sigurðardóttir bætti Íslandsmet sitt í langstökki kvenna um 5cm í dag þegar hún stökk 6,45m í langstökki á MÍ í fjölþrautum. Einungis 23 dagar eru síðan hún bætti 11 ára gamalt met Sunnu Gestsdóttur um 12 cm og því greinilegt að Hafdís er í hörkuformi þessa dagana. Hafdís, sem aldrei hefur áður keppt í fimmtarþraut, varð í dag Íslandsmeistari í greininni með 3805stig. Ásgerður Jana varð í öðru sæti með 3512 stig sem er 122 stiga bæting hjá henni. Stefán Þór Jósefsson og Snorri Eldjárn Hauksson kepptu í sjöþraut karla. Stefán Þór varð þriðji með 4249stig en það er bæting hjá honum um 376 stig. Snorri Eldjárn hafnaði í 4 sæti með 3322 stig en hann var að keppa í fyrsta skiptið í sjöþraut.
Árangur okkar fólks var eftirfarandi:
Lesa meira
Í dag fór fram Bikarkeppni FRÍ í Laugardalshöll. UFA ásamt UMSE, UMSS og HSÞ sendu frá sér sameinað lið undir nafninu Bikarlið Norðurlands. Keppnin var jöfn og spennandi, einungis 4 stigum munaði á á fyrsta og öðru sætinu en lið ÍR sigraði með 145 stig en bikarlið Norðurlands var með 141 stig. Lið FH varð í þriðja sæti með 132 stig.
Lesa meira
Nú um helgina fór fram Meistaramót Íslands í flokki 11-14 ára. 12 keppendur kepptu fyrir hönd UFA á móti með góðum árangri. Helstu úrslit voru þessi:
Lesa meira