• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Fréttir

Hafdís lenti í 16 sæti í langstökki á EM

Hafdís Sigurðardóttir keppti nú í dag í forkeppni í langstökki kvenna á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Swiss þessa dagana. Gerði hún öll þrjú stökkin sín gild í keppninni en það síðasta var langlengst eða 6,27m. Var hún aðeins 4 sætum frá því að komast í úrslit sem telst mjög góður árangur á hennar fyrsta Evrópumeistaramóti. Glæsilegt hjá þér Hafdís og til hamingju með árangurinn. Þess má geta að hún hefur ekki lokið keppni á mótinu því hún keppir í 200m hlaupi á fimmtudaginn! Við hvetjum alla til að fylgjast með með þessari glæsilegu íþróttakonu spreyta sig meðal þeirra bestu í Evrópu - ÁFRAM HAFDÍS!!!
Lesa meira

Bikarlið Norðurlands í 3.sæti í Bikarkeppni FRÍ

Bikarkeppni FRÍ fór fram um síðastliðna helgi á Laugardalsvelli. Líkt og undanfarin ár þá keppir UFA undir merkjum Norðurlands ásamt UMSS, UMSE og HSÞ. Skemmst er frá því að segja að lið Norðurlands hafnaði í þriðja sæti í heildarstigakeppninni með 141 stig en lið ÍR sigraði með 192 stig og FH hafnaði í öðru sæti með 165 stig.
Lesa meira

Hafdís á leiðinni á EM og með nýtt Íslandsmet í 60m hlaupi

Hafdís Sigurðardóttir verður ein af 5 keppendum sem munu keppa fyrir Íslands hönd á EM sem hefst þriðjudaginn í næstu viku og fer fram í Zürich í Sviss. Þar mun hún keppa í langstökki og 200m hlaupi en Frjálsíþróttasamband Íslands tilkynnti hópinn í gær. Það var þó ekki það eina merkilega sem gerðist hjá Hafdísi í gær því hún gerði sér lítið fyrir og bætti eigið Íslandsmet í 60m hlaupi á Sprettmóti UFA. Fyrra metið var 7,68s en í gær hljóp hún á tímanum 7,64s. Til hamingju með Íslandsmetið Hafdís og gangi þér sem allra best í Zürich. Við minnum á að RÚV mun sýna frá mótinu og því um að gera að fylgjast með hvenær Hafdís á að keppa.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA