Síðasta hlaupið í vetrarhlaupasyrpu UFA fór fram í morgun við kjöraðstæður.
Lesa meira
Kolbeinn Höður Gunnarsson kom sá og sigraði á Stórmóti ÍR þann 31.janúar. Kolbeinn setti Íslandsmet í 200m hlaupi karla þegar hann kom í mark á tímanum 21,64 sek en fyrra metið var í eigu Óla Tómasar Freyssonar (21,65 sek). Þá lét Kolbeinn sér það ekki nægja heldur bætti öðru Íslandsmeti í safnið þegar hann sigraði 400m hlaup karla á tímanum 47,59 sek. Kolbeinn Höður varð svo annað í 60m hlaupi karla á tímanum 7,01 sek. Hjartanlega til hamingju með árangurinn Kolbeinn Höður.
Lesa meira
Hafdís Sigurðardóttir bætti eigið Íslandsmet í langstökki um tvo sentimetra þegar hún stökk 6,47m á RIG. Innilega til hamingju með þennan frábæra árangur Hafdís.
Lesa meira