• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Fréttir

Bjarki og Bjartmar hafa lokið keppni í sinni fyrstu landsliðsferð

Bjartmar hljóp á 1:57,09 mín sem er næst besti árangur hans í greininni.  Bjarki hafnaði í 6. sæti með 6097 stig sem bæting.  Til hamingju með árangurinn strákar.
Lesa meira

Gogga galvaska lokið

Agnes Eva og Heiðrún Dís tóku báðar þátt í stangarstökki sem var sýningargrein, Agnes sigraði með 2,21 m og Heiðrún Dís hafnaði í 3. sæti með 1,80 m en þetta var í fyrsta sinn sem hún keppir í stöng.  Heiðrún sigraði síðan í kúluvarpi í dag kastaði 8,59 m, Auður Brynja komst í úrslit í langstökki og hafnaði í 7. sæti, Ásgerður Jana varð 8. í hástökki með 1,30 m sem var jafn hátt og sú í 3. sæti en í fleiri tilraunum.  Steinar Gauti var um miðjan hóp í langstökki og 60m hlaupi.  Í stigakeppninni lentum við í 5. sæti í heildinni sem er frábær árangur með aðeins 5 keppendur, stelpurnar voru í 3. sæti í 11-12 ára og 13-14 ára flokknum í keppni við miklu fjölmennari lið.
Lesa meira

Úrslit á fyrri degi á NM í þraut

Eins og fyrr var sagt eru Bjarki og Bjartmar báðir staddir í Danmörku á vegum landsliðsins í frjálsum íþróttum. 

Bjartmar hefur ekki enn hafið keppni í Evrópubikarnum en Bjarki lauk í dag fyrri degi á NM í fjölþrautum.  Eftir fimm greinar er hann í 5 sæti með 3116 stig.
Bjarki keppir í drengjaþraut sem er aðeins frábrugðin hefðbundnu karlaþrautinni.
Árangur Bjarka í dag er eftirfarandi: 110m grind - 15,59 sek, kringla - 29,14m, stöng - 4,23m, spjót - 44,05m, 300m - 37,92sek.  Hægt er að skoða nánari úrslit á slóðinni http://www.vejle-if.dk/njcce2007/res-uni.htm.
Ýmslegt getur þó enn breyst þar sem þrautin er aðeins hálfnuð en keppni hefst aftur snemma í fyrramálið.

Bjartmar hleypur 800m í Óðinsvéum kl. 12:50 á morgun að íslenskum tíma.  Bjartmar, sem er á 19. aldursári, er að fara að hlaupa með mörgum bestu hlaupurum Evrópu.  Hægt er að fylgjast með úrslitum af Evrópubikarnum á slóðinni www.dansk-atletik.dk/ecup07.

Við bíðum því spennt eftir að sjá hvað morgundagurinn ber með sér!

Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA