• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Fréttir

Metþáttaka í Gamlárshlaupi

Gamlárshlaup UFA fór fram í morgun og var mjög vel sótt. Um hundrað manns tóku þátt og hlupu eða gengu 4 eða 10 km. Flestir voru þátttakendur í 10 km. hlaupi en 61 hlaupari hljóp þá vegalengd, sem er tvöföldun frá því í fyrra -sem taldist þó gott ár. Í 4 km. hlaupi voru þátttakendur 28 og 10 manns gengu 10 km. Árið hvefur verið gott ár í almenningshlaupum á Akureyri og greinilegt að æ fleiri hlaupa sér til ánægju og heilsubótar.

Í 4 km. hlaupi kom Jakob Hafsteinsson fyrstur í mark á tímanum 17:30, annar var faðir hans Hafsteinn Jakobsson á 18:09 og þriðji var Hlynur Jóhannsson á 18:29. Fyrst kvenna var Halldóra S. Halldórsdóttir á 19:55 önnur var Arna Björk Jónasardóttir á 19:55 og þriðja var Inga Vala Gísladóttir á 20:18.

Í 10 km. hlaupi sigraði Sigurbjörn Árni Arngrímsson á tímanum 35:48, annar var Bjartmar Örnuson á 36:27 og þriðji var Sveinn Margreisson á 36:37. Fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 43:12.önnur var Sigríður Einarsdóttir á 43:46 og þriðja var Ólöf G. Ólafsdóttir á 46:29.

Þar sem fjöldi þátttakenda fór langt fram úr björtustu vonum mótshaldara kláruðust viðurkenningarskjölin og einhverjir fengu "leiðrétt" skjöl. Þeir sem óska eftir að fá nýtt viðurkenningarskjal með réttri vegalengd geta sent póst á svanni@centrum.is og fá þá sent nýtt skjal.

Hér má sjá úrslitin.

 

 

Lesa meira

Íþróttamaður UFA 2007

Bjarki Gíslason hefur verið valinn Íþróttamaður UFA 2007, óskum við honum hjartanlega til hamingju um leið og við óskum ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Lesa meira

Íslandsmet hjá Bjartmari í 1000 m hlaupi

Bjartmar Örnuson setti Íslandsmet í 1000 m hlaupi í flokki 19-20 ára á áramóti Fjölnis á laugardaginn hann hljóp á 2.37,23 mín og var í öðru sæti í hlaupinu.  Til hamingju Bjartmar.  Keppendur frá UFA á mótinu voru 6 aðrir verðlaunahafar voru Bjarki Gíslason sem sigraði í stöng stökk 4,20m og Hulda Margrét Hauksdóttir sem sigraði í stöng stökk 2,20m og varð 2. í kúluvarpi meyja kastaði 10,66m.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA