• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Fréttir

Lokahlaup vetrarhlaupanna

mars08_223_120Fimmtán manns tóku þátt í síðasta vetrarhlaupi vetrarins sem fram fór í morgun. Halldór Halldórsson kom fyrstur í mark á tímanum 42:44, Starri Heiðmarsson var annar á 42:50 og Heimir Guðlaugsson þriðji á 42:58. Sigríður Einarsdóttir var fyrst kvenna á 43:41, Rannveig Oddsdóttir var önnur á 45:25 og Björk Sigurðardóttir var þriðja á 47:37. Að hlaupi loknu var boðið til lokahófs á Bjargi þar sem veitt voru verðlaun fyrir stigakeppnina, viðurkenningar fyrir ástundun og framfarir og útdráttarverðlaun frá styrktaraðilum hlaupsins, Ljósgjafanum/Siemenns, Halldóri Ólafssyni úr og skartgripir og Bjargi.

Hér má sjá úrslitin í öllum hlaupunum og stigakeppninni.

Lesa meira

MÍ 12-14 ára 5.-6. apríl

Unnar tekur við skráningum á æfingu í Höllinni á morgun sunnudag.  Farið verður með rútu frá Hamri á föstudag og komið til baka á sunnudagskvöld, gist verður í Tónabæ við Safamýri ásamt UMSE.  Kostnaður verður um 6-7000 kr.  Nauðsynlegt er að eitt foreldri fari með, vinsamlegast bjóðið ykkur fram strax. 
Lesa meira

Vetrarhlaup og uppskeruhátíð á laugardag

Næstkomandi laugardag 29. mars, fer lokahlaupið í vetrarhlaupasyrpu vetrarins fram. Að venju verður hlaupinn 10 km hringur frá Bjargi og hefst hlaupið kl. 11:00. Að hlaupi loknu geta þátttakendur farið í sturtu og heita potta á Bjargi. Kl. 13:00 fer síðan fram verðlaunaafhending þar sem veitt verða verðlaun fyrir stigakeppnina og útdráttarverðlaun frá styrktaraðilum hlaupsins, Ljósgjafanum/Siemens, Halldóri Ólafssyni úr og skart og Bjargi. Allir þeir sem tekið hafa þátt í hlaupunum í vetur eiga möguleika á að hreppa útdráttarverðlaun og er nafn hvers einstaklings jafnoft í pottinum og hlaupin sem hann hefur tekið þátt í.
Aðalfundur langhlauparadeildarinnar verður haldinn í framhaldi af verðlaunaafhendingunni. Fundurinn verður á léttu nótunum og hefst á stuttri kynningu á starfsemi deildarinnar sem við hvetjum alla til að hlusta á. Boðið verður upp á léttar veitingar og stefnum við að því að eiga góða samverustund þar sem hlaup verða að sjálfsögðu aðalumræðuefnið.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA