• hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Fréttir

UFA félagar takiđ eftir

Frá stjórn UFA. Öll þátttaka á mótum sem eru ekki á vegum FRÍ og ferðir þeim tilheyrandi eru alfarið á kostnað iðkenda. Hér er átt við mót eins og Vormót UMSE sem verður haldið 18. – 19. júní n. k. á Dalvík, Sumarleika HSÞ að Laugum 12. - 13. júlí svo og önnur mót sem kunna að vera í boði í sumar og haust.

FRÍ stendur fyrir Frjálsíþróttasamband Íslands og á þess vegum eru meistaramótin og bikarkeppnir. Kostnaður vegna þátttöku okkar fólks í mótum þess er að hluta greiddur af UFA .

Þá viljum við minna þá á sem stunda frjálsíþróttaæfingar hjá UFA og hafa ekki greitt fyrir þær að gera skil hið fyrsta.

Lesa meira

Íslandsmet hjá Bjarka í stönginni.

Bjarki Gíslason stökk 4,45 m í stöng á móti á Laugum á laugardaginn, er það bæting á meti Sveins Elíasar í drengjaflokki 17-18 ára um 5 sm og jöfnun á meti Gauta Ásbjörnssonar í unglingaflokki 19-20 ára.  Til hamingju með metið Bjarki.  Þess má einnig geta að Bjarki og Bjartmar eru að fara suður á vormót ÍR á miðvikudag en það er úrtökumót fyrir Evrópubikar landsliða í Tallin í Eistlandi 21. -22. júní.  Óskum þeim góðs gengis á mótinu.
Lesa meira

Úrslitin í vormótinu komin inn

Keppendur voru um 80 í góðu veðri á Akureyrarvelli.  Úrslitin eru á www.fri.is mótaforrit.  Þökkum fyrir daginn.
Lesa meira

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA