Fyrsta vetrarhlaupið fór fram í morgun í ágætu vetrarveðri og færð. Þrjátíu og tveir hlauparar mættu til leiks og hlupu 10 km. Bjartmar Örnuson varð fyrstur í mark á tímanum 39:46, annar var Sigurður Þórarinsson á 42:45 og þriðji var Andri Steindórsson á 43:04. Fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 44:31, önnur var Björk Sigurðardóttir á 51:58 og þriðja var Þóra Björg Magnúsdóttir á 53:30. Hér má sjá úrslitin í hlaupinu.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.