Fyrsta vetrarhlaup vetrarins fór fram síðastliðinn laugardag og mættu tæplega þrjátíu hlauparar til leiks í blíðskaparveðri. Fyrstur í mark var Radoslaw Dariusz Szwade á 38:24, annar var Finnur Friðriksson á 38:38 og þriðji var Ágúst Örn Víðisson á 38:51. Fyrst kvenna var Guðrún Arngrímsdóttir á 44:52, önnur var Sigríður Einarsdóttir á 45:42 og þriðja var Bryndís María Davíðsdóttir á 46:38. Hörð barátta var í liðakeppninn og mjótt á mununum hjá efstu liðum. Team Fellrún hafði einu stigi betur en Hugmyndasnauðir og Morgunhænurnar komu á hæla þeirra. Það er því ljóst að það er spennandi keppni framundan í vetur. Tíma allra sem hlupu og stöðuna í stigakeppninni má sjá hér.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.