• UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Vetrarhlaup og uppskeruhátíð á laugardag

Næstkomandi laugardag 29. mars, fer lokahlaupið í vetrarhlaupasyrpu vetrarins fram. Að venju verður hlaupinn 10 km hringur frá Bjargi og hefst hlaupið kl. 11:00. Að hlaupi loknu geta þátttakendur farið í sturtu og heita potta á Bjargi. Kl. 13:00 fer síðan fram verðlaunaafhending þar sem veitt verða verðlaun fyrir stigakeppnina og útdráttarverðlaun frá styrktaraðilum hlaupsins, Ljósgjafanum/Siemens, Halldóri Ólafssyni úr og skart og Bjargi. Allir þeir sem tekið hafa þátt í hlaupunum í vetur eiga möguleika á að hreppa útdráttarverðlaun og er nafn hvers einstaklings jafnoft í pottinum og hlaupin sem hann hefur tekið þátt í.
Aðalfundur langhlauparadeildarinnar verður haldinn í framhaldi af verðlaunaafhendingunni. Fundurinn verður á léttu nótunum og hefst á stuttri kynningu á starfsemi deildarinnar sem við hvetjum alla til að hlusta á. Boðið verður upp á léttar veitingar og stefnum við að því að eiga góða samverustund þar sem hlaup verða að sjálfsögðu aðalumræðuefnið.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA