UFA stendur fyrir hlaupasyrpu í vetur eins og undanfarin ár. Hlaupin verða sex talsins og fara fram síðasta laugardag í mánuði frá október og fram í mars. Hlaupinn er 10 km hringur og er keppt í stigakeppni einstaklinga og liða. Fyrsta hlaupið fer fram næstkomandi laugardag 29. október og hefst við Bjarg kl. 11:00. Nánari upplýsingar hér.