Maraþonboðhlaup FRÍ til styrktar ólympíuförum í frjálsum íþróttum var haldið á Akureyri, Reykjavík og Egilsstöðum í gærkvöldi og stóð UFA fyrir framkvæmd hlaupsins á Akureyri. Ágæt þátttaka var í hlaupinu en 12 sveitir mættu til leiks í spennandi keppni. Keppt var í tveimur flokkkum sveita, sveitum skipuðum körlum í meirihluta og sveitum skipuðum konum í meirihluta. Bestum tíma náði sveit UFA 1 skipuð þeim Þorbergi Inga Jónssyni og Bjartmari Örnusyni en þeir hlupu á tímanum 1:15:32, öðrum besta tíma sveita 1:22:54 náði sveitin Með grátt í vöngum, skipuð Sævari Helgasyni, Gísla Einari Árnasyni, Þorleifi Stefánni Björnssyni, Halldóri Arinbjarnarsyni, Guðjóni Marteinssyni, Pálma Óskarssyni og Trausta Hannessyni, þriðja bresta tíma sveita og besta tíma kvennasveita náðu svo Hádegisvalkyrjurnar á Bjargi, Rannveig Oddsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, Sonja Sif Jóhannsdóttir og Hulda Elma Eysteinsdóttir en þær hlupu á tímanum 1:25:02. Úrslitin verða birt á Hlaupasíðunni.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.