Langhlaupa- og þríþrautardeild UFA og Þríþrautarfélag norðurlands stóðu í morgun fyrir keppni í 2-þraut í sundlaug Akureyrar og Átaki. Átján keppendur mættu til leiks og syndu 400 m og hlupu 3 km. Keppt var í tveimur aldursflokkum karla og kvenna, 39 ára og yngri og 40 ára og eldri. Í yngri flokki karla sigraði Birgir Viktor á 17:09 annar var Benedikt Sigurðsson á 18:02 og þriðji var Axel Ernir Viðarsson á 23:37. Í eldri flokki karla sigraði Stefán Viðar Sigtryggsson á 19:38 annar var Finnur Dagsson á 20:56 og þriðji var Hafliði Sævarsson á 22:48. Í yngri flokki kvenna sigraði Rannveig Oddsdóttir á 21:11 önnur var Vigdís Hallgrímsdóttir á 21:24 og þriðja var Guðlaug Þóra Marinósdóttir á 21:36. Í eldri flokki kvenna sigraði Sólveig Haraldsdóttir á 35:24 og Jennifer Lail var önnur á 39:31. Hér má sjá tíma allra þátttakenda.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.