• MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025

Uppskeruhátíð og fundur um innanhússtímabilið og Gautaborgarferð

Fimmtudaginn 10. janúar er boðað til uppskeruhátíðar UFA í kaffiteríu Íþróttahallarinnar og hefst hátíðin kl. 20:00. Á dagskrá hátíðarinnar verður að:

Heiðra alla íslandsmeisrara ársins 2012
Heiðra stigahæsta karl og stigahæstu konu ársins 2012
Veita viðurkenningar fyrir framfarir og ástundun í unglingaflokki og meistaraflokki.
Tilkynna um val á íþróttamanni ársins 2012

Stjórn UFA býður til hátíðarinnar en óskar jafnframt eftir því að félagar sameinist um að gera veitingarnar sem fjölbreytilegastar og að hver leggi til eina tegund veitinga með sér. Þá ríkir sannur ungmennafélagsandi. Drykkir; kaffi, djús og vatn verða í boði félagsins.

Í lok hátíðarinnar er ætlunin að ræða um fyrirhugaða Gautaborgarferð í sumar og fara yfir komandi keppnistímabil innanhúss.

Stjórn UFA  hvetur félagsmenn og iðkendur til að mæta og eiga góða stund saman


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA