Nú líður að Unglingalandsmóti UMFÍ sem haldið verður á Akureyri um Verslunarmannahelgina næst komandi. UFA sér um framkvæmd mótsins með dyggri aðstoð Akureyrarbæjar, UMFÍ, ÍBA og annarra íþróttafélaga á Akureyri. Til að framkvæmd mótsins takist eins og best verður á kosið þarf margar hendur og þá verður þetta létt verk. Við hjá UFA biðjum því áhugasama um að skrá sig á excel skjal sem er HÉR til að stjórn UFA hafi yfirsýn yfir þá sem hafa áhuga á að starfa á mótinu til lengri eða skemmri tíma. Hægt er að skrá sig í ákveðin verk eða láta það í hendur UFA hvaða verk maður fær að leysa. Allar hendur eru velkomnar hvort heldur þær eru viðloðandi UFA eða ekki. Þetta er skemmtilegt mót og gleðin ræður ríkjum. Stöndum saman að því að gera þetta Unglingamót það flottasta sem haldið hefur verið.
Stjórn UFA