Forsvarsmenn KEA og UFA hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning vegna Akureyrarhlaups. KEA mun verða aðalstyrktaraðili hlaupsins næstu þrjú ár og mun hlaupið heita Akureyrarhlaup KEA.
Í ár verður hlaupið haldið þann 15. september og er markmið samstarfssamningsins að efla umfang hlaupsins og gera það að meiri og stærri viðburði á landsvísu. KEA og UFA munu hvetja til almennrar þátttöku í hlaupinu og jafnframt hvetja fólk á öllum aldri til að taka þátt í hlaupa- eða gönguhópum sem fara í gang í byrjun ágúst.
Hér er að finna nánari upplýsingar um hlaupið.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.