Lið UFA varð í 2.sæti í heildarstigakeppninni á MÍ 15-22ára sem lauk í dag, lið ÍR sem sigraði, hlaut 759 stig en UFA hlaut 347 stig. Lið 18-19 ára stúlkna hjá UFA og 20-22 ára ungkarla urðu Íslandsmeistarar í stigakeppni einstakra aldursflokka.
Í gær fékk UFA 9 Íslandsmeistaratitla og enn bættist við í dag en Kolbeinn Höður Gunnarsson í flokki 16-17ára varð íslandsmeistari í 200m hlaupi á 22,97sek.
Örn Dúi Kristjánsson í flokki 18-19ára varð Íslandsmeistari í 110m grindahlaupi á 16,05sek og í þrístökki, stökk 13,39m
Ásgerður Jana Ágústsdóttir 15ára varð Íslandsmeistari í hástökki, stökk 1,58m og í spjótkasti með kast upp á 36,89m
Andri Fannar Gíslason í flokki 20-22 ára varð Íslandsmeistari í kúluvarpi en hann kastaði 10,29m
Rakel Ósk Björnsdóttir varð Íslandsmeistari í 800m hlaupi 20-22ára á 2:52,16mín
Samtals hlaut UFA fólk 18 Íslandsmeistaratitla auk fjölda silfur og brons verðlauna en öll úrslit má sjá á mot.fri.is Aldeilis frábær árangur! Til hamingju UFA iðkendur og þjálfarar! Og kærar þakkir til allra sem störfuðu á mótinu, án ykkar væri ekki mögulegt að halda svona mót.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.