UFA Eyrarskokk tekur til starfa á laugardaginn

Nýr hlaupahópur á gömlum grunni, tekur til starfa næstkomandi laugardag undir nafninu UFA Eyrarskokk. Hópurinn mun hefja starf sitt með samhlaupi frá Akureyrarsundlaug kl. 10:00 á laugardaginn. Allir eru velkomnir á þessa fyrstu æfingu hópsins. Hlaupið verður í 30–60 mínútur og að því loknu verður hægt að fá nánari upplýsingar um starf hópsins og skrá sig í hann. Við hvetjum alla skokkara og hlaupara bæjarins til að fjölmenna og kynna sér betur það sem verður í boði.

Á mánudaginn hefst svo hlaupanámskeið á vegum UFA Eyrarskokks, sem er tilvalin byrjun fyrir þá sem vilja koma sér í hlaupaform, en treysta sér ekki til að koma beint inn í hópinn. Nánari upplýsingar hér.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA