Í dag eru liðin 20 ár frá því Ungmennafélag Akureyrar var stofnað -í annað sinn. En félag með sama nafni var reyndar stofnað á Akureyri 1907 og var það fyrsta ungmennafélag landsins. Starfsemi þess lognaðist hins vegar út af eftir nokkurra áratuga starf og varð því hlé á ungmennafélagsstarfi á Akureyri þar til UFA var stofnað 5. apríl 1988. UFA hefur á undanförnum 20 árum rekið öflugt æskulýðsstarf þar sem frjálsar íþróttir hafa verið í öndvegi og félagið er eina íþróttafélagið á Akureyri sem býður upp á æfingar í frjálsum íþróttum. Afmælisins verður minnst með útgáfu afmælisblaðs UFA sem kemur út í maí og einnig stendur til að halda afmælishátíð á vormánuðum sem verður nánar auglýst þegar nær dregur.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.