Hafdís Sigurðardóttir sigraði í þrístökki, stökk 12,12m og bætti þar sinn besta árangur innanhúss. Hafdís bætti tímann sinn í 200m hlaupi innanhúss þegar hún sigraði í þeirri grein á 24,21s. Þá varð hún þriðja í 60m grindarhlaupi á tímanum 8,96s (það mun einnig vera bætinga hjá henni).
Agnes Eva Þórarinsdóttir varð önnur í þrístökki en hún stökk 11,16m.
Arna Ýr Jónsdóttir varð önnur í stangarstökki en hún stökk yfir 3,30m.
Ásgerður Jana varð önnur í hástökki en sú grein fór fram í gær. Jana stökk yfir 1,61m.
Kolbeinn Höður sigraði 200m hlaupi á tímanum 21,76s en það er bæting hjá Kolbeini.
Þá urðu boðhlaupssveitir UFA í 2. sæti í kvennaflokki en 3. sæti í karlaflokki.
Í heildarstigakeppninni varð UFA í 2 sæti með 21.379 stig, UFA varð einnig í 2. sæti í karla- og kvennaflokki.
Öll úrslit má finna á http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2206.htm og hægt er að horfa á myndbönd frá mótinu á http://www.youtube.com/user/silfridtv