• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Starfsfólk óskast á MÍ 23. - 24. ágúst

Meistaramót Íslands 15-22 ára verður haldið á Sauðárkróki helgina 23. - 24. ágúst. UFA, UMSS og UMSE halda mótið í sameiningu og óskum við hér með eftir starfsfólki á mótið. Eins og flestum mun kunnugt verður landsmót UMFÍ haldið á Akureyri næsta sumar og er þetta því kærkomið tækifæri fyrir okkar starfsfólk til að æfa handtökin.
Þeir sem geta séð af tíma sínum í þetta verkefni á Króknum eru beðnir að láta Svanhildi vita í síma 462 6979 eða 864 0096 sem allra fyrst.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA