Skráning er nú hafin í 1. maí hlaup UFA. Hægt er að skrá sig í Sportveri á Glerártorgi á laugardag og sunnudag milli kl. 13:00 og 17:00 og á mánudaginn frá kl. 14:00-18:00. Einnig er hægt að skrá sig með því að senda póst á netfangið ufa@ufa.is.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.