• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Silfurleikar ÍR

Silfurleikar ÍR fóru fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík í dag. Keppendur voru 666 talsins. Mótið er nefnt Silfurleikar til að minnast stórkostlegs afreks Vilhjálms Einarssonar sem vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu árið 1956.
Keppendur frá UFA voru fjórir.
Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði 200m hlaup 16-17 ára á 22,46 sek og einnig 800m hlaup á 2:03,69 mín, og varð annar í 60m hlaupi á 7,24sek.
Ásgerður Jana Ágústsdóttir varð í 2.sæti í kúluvarpi 16-17 ára, kastaði 12,55m og í 3. sæti í hástökki en hún stökk 1,62m.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA