Hinir árlegu Silfurleikar ÍR voru haldnir í Laugardalshöllinni um sl. helgi. Keppendur voru 559 alls staðar að af landinu. Mótið er haldið til heiðurs afreki Vilhjálms Einarssonar í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu 1956 er hann vann silfurverðlaun, fyrstur Íslendinga til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum. Keppt er í aldursflokkum 17 ára og yngri. Að þessu sinni kepptu þær Ásgerður Jana Ágústsdóttir og Melkorka Ýrr Gunnarsdóttir frá UFA og stóðu þær sig mjög vel m.a. sigraði Ásgerður Jana hástökkið í flokki 15 ára er hún stökk 1,60m. Öll úrslit má sjá á mot.fri.is
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.