Síðasta víðavangshlaup UFA á laugardag

Lokahlaupið í víðavangshlaupasyrpu UFA fer fram næstkomandi laugardag. Að þessu sinni verður hlaupið frá tjaldstæðinu á Hömrum. Styttra hlaupið (einn hringur) er að þessu sinni 1100 m og það lengra 6600 m (sex hringir). Hlaupið hefst kl. 11:00. Skráning á staðnum frá kl. 10:30 og eins og áður er frítt í hlaupið.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA