• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Okkur vantar fólk í stjórn

Aðalfundur UFA verður haldinn 12. mars næstkomandi og fara þá fram stjórnarskipti. Fimm núverandi stjórnarmanna gefa ekki kost á sér til endurkjörs. Það eru Gunnar Gíslason formaður, Rannveig Oddsdóttir varformaður, Þröstur Már Pálmason gjaldkeri, Ólafur Sveinn Traustason meðstjórnandi og Þórólfur Sveinsson meðstjórnandi. Félagið þarf því nú sem aldrei fyrr á áhugasömu fólki að halda til að taka við stjórnartaumunum og halda áfram að byggja upp það góða starf félagið rekur. Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að byggja upp öflugt frjálsíþróttastaf til að hafa samband við okkur og gefa kost á sér til starfa fyrir félagið. Nánari upplýsginar um um sjálfboðastarf UFA má lesa hér og einnig má leita frekari upplýsinga í gegnum netfangið ufa@ufa.is


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA