Fyrr í dag var undirritaður samningur milla Akureyrarbæjar og íþróttafélaganna Þórs og KA um uppbyggingu mannvirkja á félagssvæðum þeirra. Í samningnum kemur fram að á félagssvði Þórs verður byggður fullkominn frjálsíþróttavöllur sem á að vera tilbúinn til notkunar fyrir Landsmót UMFÍ árið 2009.
Þetta er langþráður samningur sem við fögnum öll og nú bíðum við spennt eftir fyrstu skóflustungunni!