• hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Nóvembermót UFA

Næstkomandi laugardag 12. nóvember heldur UFA frjálsíþróttamót í boganum. Keppt verður í helstu flokkum frjálsra íþrótta í aldursflokkum 10 ára og eldri og þrautabraut hjá 9 ára og yngri. Skráning fer fram hjá þjálfurum og þarf að tilkynna þeim um þátttöku í síðasta lagi á æfingu á fimmtudaginn. Skráningargjald er kr. 2000 fyrir 10 ára og eldri og 1500 fyrir 9 ára og yngri. Greiða þarf þátttökugjaldið áður en mótið hefst. Annað hvort með því að leggja inn á reikning félagsins og prenta út kvittun sem framvísað er á staðnum að morgni keppnisdags, eða með staðgreiðslu að morgni 12. nóvember (athugið að við erum ekki með posa). Mótið hefst kl. 10:00. Drög að tímaseðli má sjá á mótaforriti fri (sjá fri.is).

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA