• MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025

Norðurorka styrkir til UFA

Í dag úthlutaði Norðurorka styrkjum til hinna ýmsustu málefna á starfssvæði fyrirtækisins.  UFA fékk úthlutað styrk frá Norðurorku vegna Unglingalandsmótsins sem haldið verður á Akureyri um Verslunarmannahelgina 2015.  Við kunnum Norðurorku bestu þakkir fyrir að hugsa til okkar og styrkja okkur í þessu verkefni sem kemur til með að setja skemmtilegan og hressilegan svip á bæinn um þessa helgi sem verður þá risastór í bænum.  Unglingalandsmótið verður unnið í sátt og samlyndi og samvinnu við Eina með öllu.  Unglingalandsmótinu verður gert hátt undir höfði þessa helgi eins og það á skilið og gildin sem eru þar í hávegum höfð - skemmtun án áfengis - verða í ár sem áður fyrr í hávegum höfð.

 

Takk kærlega fyrir okkur, Norðurorka.

Stjórn UFA


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA