Laugardaginn 26. apríl stendur langhlaupa- og þríþrautardeild UFA fyrir hálfmaraþonhlaupi. Hlaupið hefst við líkamsræktarstöðina Átak kl. 11:00 og verður hlaupin sama leið og í Akureyrarhlaupi. Umgjörð hlaupsins er einföld og látlaus, ekki verða veitt verðlaun fyrir sæti en dregið verður út lambalæri frá Norðlenska. Skráning á staðnum frá kl. 10:00, þátttökugjald kr. 500. Hægt að nýta búningsaðstöðu í Átaki og skella sér í heitan pott eftir hlaup.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.