UFA vann níu Íslandsmeistaratitla á MÍ sem fram fór í Kaplakrika um helgina og var þriðja stigahæsta félagið á mótinu. Hafdís Sigurðardóttir var í þrumustuði og vann allar sínar greinar; 100m, 200m, 400m hlaup, langstökk og þrístökk og bætti árangur sinn í 100m hlaupi um þrjá hundruðustu úr sekúndu þegar hún hljóp á 11,84. Hafdís bætti svo við sig sjötta íslandsmeistaratiltinum með sigri UFA í 4x100m boðhlaupi.
Selma Líf Þórólfsdóttir varð Íslandsmeistari í hástökki, Rakel Ósk Björnsdóttir í stangarstökki og bætti hún árangur sinn um 8 cm þegar hún fór yfir 3,42 m og Stefán Þór Jósefsson sigraði í þrístökki.
Kolbeinn Höður mátti lúta í lægra haldi fyrir Jóhanni Birni Sigurbjörnssyni í bæði 100m og 200m hlaupi og sætta sig við annað sæti í báðum greinum. Ásgerður Jana Ágústsdóttir varð í öðru sæti í kúluvarpi og þriðja sæti í spjótkasti og Bjartmar Örnuson náði öðru sæti í 800m hlaupi.
Þá varð boðhlaupssveit UFA í 4x400m kvenna í öðru sæti og UFA karlar náðu þriðja sæti í bæði 4x100m og 4x400m.
Glæsilegur árangur hjá okkar fólki.