• UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

MÍ 15-22 ára fór fram um síðustu helgi

Ásgerður Jana er, líkt og flestum er kunnugt, fjölþrautarkona með meiru og keppti 8 greinum en hún varð í verðlaunasæti í þeim öllum. Jana varð Íslandsmeistari í hástökki, langstökki, kúluvarpi og spjótkasti en þar bætti hún sig um 64cm og kastaði spjótinu 45,25m. Þá varð hún í öðru sæti í 100m, 200m og 100m grindarhlaupi en hún bætti sig einni í grindarhlaupinu um nokkur sekúndubrot. Þá varð hún þriðja í kringlukasti.

Fleiri keppendur urðu Íslandsmeistarar í sínum aldursflokkum um helgina.

Steinunn Erla varð þrefaldur Íslandsmeistari í 100m, 200m og 400m hlaupi en hún bætti sig í 200m hlaupinu er hún hljóp á 25,16s en fyrir átti hún 25,61 þannig að um töluverða bætingu er að ræða hjá henni.

Kolbrún Helga varð í öðru sæti í bæði 200m og 800m hlaupi. 

Stefán Þór varð Íslandsmeistari í þrístökki, varð annar í hástökki og þriðji í langstökki og 110m grindarhlaupi.

Arna Ýr varð Íslandsmeistari í stangarstökki.

Berglind Björk varð Íslandsmeistari í 1500m og 400m grindarhlaupi en varð önnur í 800m hlaupi.

Selma Líf varð Íslandsmeistari í hástökki og bætti um leið mótsmetið í þeirri grein með stökki yfir 1.65m. Þá varð hún í þriðja sæti í sleggjukasti.

Rún varð Íslandsmeistari í sleggjukasti með 3,60m bætingu þegar hún þrumaði sleggjunni 42,60m. Þá varð hún í öðru sæti í stangarstökki.

Sesselja Dís varð í öðru sæti í spjótkasti, hún bætti sig um 70cm og fór yfir 30m múrinn. Þá var hún í þriðja sæti í kúluvarpi.

Þá varð sveit UFA í öðru sæti í boðhlaupi í flokki 16-17 ára.

Flottur árangur hjá okkar fólki um helgina - Til hamingju krakkar :)

Öll úrslit má finna á http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2317.htm


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA