• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

MÍ 11–14 ára (14.–15. febrúar)

MÍ 11-14 ára verður í Reykjavík núna um miðjan febrúar og okkur langar til að fara með stóran og flottan hóp með okkur suður. Því viljum við hvetja ykkur krakkar til að koma og taka þátt hvort sem þið æfið frjálsar núna, hafið æft áður eða langar bara að prófa.

Hér koma svo helstu upplýsingar um mótið og ferðina:

Síðasti skráningardagurinn er á mánudaginn næsta (9. feb).
Við leggjum af stað með rútu frá Boganum kl. 15 á föstudaginn (13. feb). Keppnin verður í Laugardalshöllinni og við gistum í Laugarnesskóla.
Heimför eftir mót á sunnudag, heimkoma líklega um kl. 22 en kemur betur í ljós síðar.
Krakkarnir þurfa að vera með nesti fyrir föstudaginn en allur annar matur er innifalinn í ferðinni.
Rúta, gisting, keppnisgjald og matur mun kosta u.þ.b. 13.000.

Helsta sem taka þarf með:
- dýna (helst vindsæng eða annað fyrirferðalítið upp á plássið í rútunni)
- svefnpoki og koddi
- sundföt og handklæði
- gaddaskór og íþróttaskór
- keppnisbúningur og íþróttaföt
- UFA bolur/peysa (alltaf gott að hafa eitthvað merkt félaginu)
- tannbursti og annað snyrtidót
- nesti fyrir föstudaginn

Keppnisgreinar:
- 60m
- 800m
- langstökk
- hástökk
- kúluvarp
- 4x200m boðhlaup
- 60 m grindahlaup (13 og 14 ára)

Ef það eru einhverjar spurningar þá bara heyra í okkur, senda tölvupóst eða hringja
Heiðrún (848-2069, heidrundis@gmail.com)
Unnar (868-4547, unnarv@ma.is)


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA