Gamlárshlaup UFA fór fram í morgun og var mjög vel sótt. Um hundrað manns tóku þátt og hlupu eða gengu 4 eða 10 km. Flestir voru þátttakendur í 10 km. hlaupi en 61 hlaupari hljóp þá vegalengd, sem er tvöföldun frá því í fyrra -sem taldist þó gott ár. Í 4 km. hlaupi voru þátttakendur 28 og 10 manns gengu 10 km. Árið hvefur verið gott ár í almenningshlaupum á Akureyri og greinilegt að æ fleiri hlaupa sér til ánægju og heilsubótar.
Í 4 km. hlaupi kom Jakob Hafsteinsson fyrstur í mark á tímanum 17:30, annar var faðir hans Hafsteinn Jakobsson á 18:09 og þriðji var Hlynur Jóhannsson á 18:29. Fyrst kvenna var Halldóra S. Halldórsdóttir á 19:55 önnur var Arna Björk Jónasardóttir á 19:55 og þriðja var Inga Vala Gísladóttir á 20:18.
Í 10 km. hlaupi sigraði Sigurbjörn Árni Arngrímsson á tímanum 35:48, annar var Bjartmar Örnuson á 36:27 og þriðji var Sveinn Margreisson á 36:37. Fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 43:12.önnur var Sigríður Einarsdóttir á 43:46 og þriðja var Ólöf G. Ólafsdóttir á 46:29.
Þar sem fjöldi þátttakenda fór langt fram úr björtustu vonum mótshaldara kláruðust viðurkenningarskjölin og einhverjir fengu "leiðrétt" skjöl. Þeir sem óska eftir að fá nýtt viðurkenningarskjal með réttri vegalengd geta sent póst á svanni@centrum.is og fá þá sent nýtt skjal.