Helgina 16. - 17. ágúst verða haldin tvö frjálsíþróttamót á norðurlandi. Meistaramót Íslands 11-14 ára verður haldið á Laugum þá helgi og á Sauðárkróki fara Norðurlandsleikarnir fram. Ufa iðkendur 11-14 ára eru hvattir til að keppa á meistaramótinu fyrir félagið og aðrir aldurshópar ætla að fjölmenna á Krókinn. Þar sem stutt er að fara verður ekki boðið upp á rútuferðir á mótin en foreldrar hvattir til að fylgja börnum sínum. Á Laugum er hægt að tjalda við frjálsíþróttasvæðið og því tilvalið að slá saman útilegu og íþróttaiðkun. Keppendur þurfa að skrá sig hjá þjálfurum í síðasta lagi næstkomandi mánudag (11. ágúst). Mótsgjald á meistaramótið er kr. 2500 og er gisting og grill innifalið í því. Mótsgjald á Norðurlandsleika er kr. 1000 fyrir 10 ára og yngri en kr. 2000 fyrir 15 ára og eldri. Dagskrá mótanna er hægt að sjá í mótaforriti fri.
Langar ţig ađ hlaupa?
UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.