• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Meistaramót Íslands innanhúss

Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði í 200 m hlaupi á nýju Íslandsmeti þegar hann kom í mark á 21,38 sek. Kolbeinn Höður sigraði einnig 60m hlaupið á 6,98 sek og 400m hlaupið á 47,64 sek.

Bjartmar Örnuson sigraði í 800m hlaupi á tímanum 1:55,74 mín. Þá varð hann þriðji í 1500m á tímanum 3:59,03 mín.

Þorbergur Ingi Jónsson sigrði í 3000m hlaupi á tímanum 8:26,45 mín. Þá varð hann annar í 1500m á tímanum 3:56,88 mín.

Stefán Þór Jósefsson sigraði í þrístökki með stökk upp á 13,41 metra.

Hafdís Sigurðardóttir sigraði í langstökki með stökk upp á 6,32 metra.  Þá varð hún önnur í 60m hlaupi á tímanum 7,61 sek og önnur í 200m á tímanum 24,21 sek.

Berglind Björk Guðmundsdóttir varð þriðja í 800m hlaupi á tímanum 2:30,37 mín.

Anna Berglind Pálmadóttir varð þriðja í 3000m hlaupi á tímanum 10:37,64 mín.

Ásgerður Jana Ágústsdóttir sigraði kúluvarpið með kast upp á 11,95 metra. Þá varð hún þriðja í hástökku þegar hún fór yfir 1,64 metra.

Rakel Ósk Dýrfjörð Björnsdóttir varð önnur í stangarstökki með stökk upp á 3,40 metra.

Stefán, Gunnar, Bjartmar og Kolbeinn lentu í öðru sæti í 4x400m boðhlaupi á tímanum 3:28,91 mín.

Í stigakeppninni varð lið UFA í þriðja sæti bæði í kvenna og karlaflokki. Í heildarstigakeppninni varð UFA einnig í þriðja sæti með  20164,0 stig.

Til hamingju með glæsilegan árangur!!!

 

 

 


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA