• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Meistaramót Íslands í fjölþrautum

Meistaramót Íslands í fjölþrautum var haldið um síðustu helgi í Reykjavík.   UFA sendi þrjá keppendur á mótið að þessu sinni og gekk þeim nokkuð misjafnt.

Ásgerður Jana stóð sig best því hún varð hlutskörpust í fjölþraut með 3320 stig. (Fimmtarþraut kvenna)  Vann langstökkið, 60 m grind, hástökkið og kúluvarpið og varð önnur í 800 metra hlaupinu.  Vel gert Jana.  Til hamingju með árangurinn.

Stefán Þór Jósefsson keppti í sjöþraut karla og hlaut 3225 stig og átti ekki sína bestu þraut en það gengur bara betur næst.

Gunnar Eyjólfsson keppti í sjöþraut 16 - 17 ára pilta og bætti sinn persónulega árangur og hlaut 4285 stig.  Hann stóð sig vel og var mjög jafn í öllum greinum ýmist í öðru eða þriðja sæti að jafnaði.  Flott þraut og framtíðarmaður í þraut hjá okkur.  


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA