Maraþonboðhlaup FRÍ

Þann 12.júní klukkan 20:00 voru 14 boðhlaupslið ræst við Samkomuhúsið í maraþonboðhlaupi FRÍ.  Þarna voru samankomnir um 100 hlauparar af Akureyri að hlaupa 3ja kílómetra hring í áttina að skautasvellinu.  Þarna voru lið úr ýmsum áttum.  Grunnskólar Akureyrar áttu 3 lið, saumaklúbbur, vinahópar, fjölskyldur og nágrannar mynduðu lið ásamt vinnufélögum t.d. frá MS-Akureyri.

Þetta var mjög skemmtilegt hlaup þar sem gleðin réð ríkjum og þátttakan var ofar en sigurinn.  Þess vegna var lögð áhersla á útdráttarverðlaun og ber að þakka fjölmörgum fyrirtækjum fyrir að styrkja hlaupið.

Slippurinn, Strikið, Bautinn, Subway, Zone, Hamborgarafabrikkan, Byko, Jarðböðin við Mývatn, Jogger-ís, Spretturinn, Sportver, Orkusalan,  Vífilfell, Hreysti, Krua Siam, Múlaberg og fleiri gáfu verðlaun í hlaupið og þökkum við þeim heilshugar fyrir það.

Myndir úr hlaupinu.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA