Frábær árangur UFA á MÍ 11-14 ára, UFA varð í 3. sæti í heildarstigakeppninni og í 2. sæti í 13 og 14 ára piltaflokkunum. Kolbeinn Höður Gunnarsson 13 ára varð Íslandsmeistari í 100m, 800m, 80m grindahlaupi og hástökki og fékk silfur í langstökki, Andri Már Bragason 14 ára varð Íslandsmeistari í 100m, 80m grind og langstökki og fékk brons í 800m hlaupi, Hjalti Björnsson 14 ára Íslandsmeistari í spjótkasti og Valþór Karlsson 11 ára Íslandsmeistari í kúluvarpi, Magnús Aríus Ottósson 11 ára brons í 60m hlaupi og langstökki, Tanja Freydís Leggart 11 ára silfur í spjótkasti, Ásgerður Jana Ágústsdóttir 12 ára silfur í hástökki, Bjarki Kjartansson 13 ára brons í 80 m grind, 13 ára strákar silfur í 4x100m boðhlaupi og 14 ára stelpur brons. í heildina 9 Íslandsmeistaratitlar, 4 silfur og 5 brons. Frábær árangur í góðu veðri á Laugum, til hamingju krakkar
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.