Kolbeinn Höður Gunnarsson setti Íslandsmet í 400m hlaupi á frjálsíþróttahluta Reykjavík International 2013, sem fram fór í dag. Hann hljóp á tímanum 48,32 sek og bætti sinn besta árangur um 1 sek og Íslandsmetið um 1/100. Frábær árangur í upphafi keppnistímabilsins innanhúss. Þá er árangur Bjarka Gíslasonar ekki síðri á sama móti, en hann bætti Akureyrarmetið í stangarstökki í annað sinn á þremur dögum í dag þegar hann stökk 5,10m. Hann hefur þá bætt metið um 20cm sem er frábær árangur og má velta því upp hvort hann verði ekki búinn að bæta Íslandsmetið sem er 5,30m í lok febrúar með sama áframhaldi.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.