Karlaliðið hafnaði í 2. sæti og kvennaliðið í 5. sæti, samanlagt í 4. sæti með 101 stig. Karlasveitin sigraði 4x400 m boðhlaup á tíma sem er undir Íslandsmeti 3:21,27 en fæst ekki viðurkennt þar sem keppendur voru úr fleiri en 1 félagi. B-lið Norðurlands hafnaði í neðsta sæti en öðlaðist mikla reynslu og einhverjir voru að bæta sig. Þetta mót sýnir okkur að við eigum fullt erindi á móti stóru félögunum. Tökum Bikarinn á næsta ári.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.