Meistaramót Íslands í 10 km götuhlaupi fór fram á Akureyri í kvöld. Margir af okkar bestu langhlaupurum voru mættir til leiks. Aðstæður voru góðar og tímar fyrstu manna glæsilegir. Kári Steinn Karlsson var aðeins 7 sekúndum frá því að bæta 29 ára gamalt íslandsmet Jóns Diðrikssonar og hljóp á 30:18 sem er einni sekúndu betri tími en besti tími hans hingað til. Annar karla var Þorbergur Ingi Jónsson sem hljóp á 32:14 sem er hans besti tími og áttundi besti tími íslendings í 10 km götuhlaupi. Og þriðji var Ármann Eydal Albertsson á 33:40. Í kvennaflokki sigraði Arndís Ýr Hafþórsdóttir á 36:55 sem er þriðji besti tími íslenskrar konu frá upphafi og í öðru sæti var Rannveig Oddsdóttir á 37:11 sem er sjötti besti tími íslenskrar konu, í þriðja sæti var Sigrún Björk Sigurðardóttir á 42:06.
Einnig var keppt í 5 km hlaupi og hálfmaraþoni. Í 5 km hlaupi karla sigraði Ívar Sigurbjörnsson á 18:58 og í kvennaflokki sigraði Selma Sigurðardóttir Malmquist á 21:33. Í hálfmaraþoni karla sigraði Arnar Pétursson á 1:13:54 og í kvennaflokki sigraði Ásdís Káradóttir á 1:36:54