• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Íslandsmet hjá Bjarka í stangarstökki og fleiri verðlaunahafar

Bjarki Gíslason endurheimti í dag Íslandsmet sitt í drengjaflokki 17-18 ára þegar hann stökk 4,40 m í sínu fyrsta stökki og jafnaði metið í 19-20 ára flokki, hann vann karlaflokkinn.  Andri Már Bragason sigraði í 60 m grindahlaupi á 9,78 sek, og varð 2. í 60 m hlaupi á 8,22 sek, 200 m hlaupi á 27,30 sek og 800 m hlaupi á 2:22,68 mín í 13-14 ára flokki, Bjarki Kjartansson varð 3. í 60 m grind í sama flokki.  Örn Dúi sigraði í 60 m grind í 15-16 ára flokki á 9,32 sek og Heiðrún Dís Stefánsdóttir varð 3. á 9,85.  Þorsteinn Helgi sigraði 60 m grindahlaup í karlaflokki á 9,58 og Elvar Freyr varð 2. á 10,81, hann varð einnig 2. í 800 m hlaupi á 2:09,64 mín.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA