• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Íslandsmet hjá Hafdísi

Hafdís Sigurðardóttir setti í dag Íslandsmet í langstökki á Meistaramóti Íslands þegar hún stökk 6,40 m. Bætti hún þar með 11 ára gamalt Íslandsmet Sunnu Gestsdóttur í greininni um heila 12 cm. Glæsilegur árangur hjá Hafdísi og ljóst að hún ætlar ekkert að gefa eftir á þessu ári eftir að hafa náð toppárangri í fyrra. Hafdís sigraði einni í 60 m hlaupi á 7,58 sek sem er einnig bæting. Hún bætti svo þriðja Íslandsmeistaratitlinum í safnið með sigri og bætingu í 400 m hlaupi þar sem hún háði harða baráttu við Anítu Hinriksdóttur úr ÍR. -

Kolbeinn Höður varð tvöfaldur Íslandsmeistari í dag með sigri í 60 m og 400 m hlaupi og Bjarki Gíslason sigraði í þrístökki og bætti sinn árangur þar um nokkra sentimetra með stökki upp á 14,15 m.

Góður dagur hjá okkar fólki og það verður spennandi að fylgjast með áframhaldandi keppni okkar fólks á morgun.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA