• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Íslandsmeistarar UFA 2011

Íslandsmeistarar UFA 2011

Í árlegu hófi Íþróttaráðs Akureyrarbæjar s.l. þriðjudag 27. desember var Íslandsmeisturum UFA árið 2011 veitt viðurkenning í formi viðurkenningarskjals sem verður hengt upp í aðsetri félagsins. Sennilega hafa Íslandsmeistaratitlarnir aldrei verið fleiri í sögu félagsins og aldrei fleiri einstaklingar náð þessum árangri eða 19.  

Eftirtaldir félagar UFA urðu Íslandsmeistarar í einni eða fleiri greinum: Agnes Eva Þórarinsdóttir, Andri Fannar Gíslason, Ásgerður Jana Ágústsdóttir, Berglind Björk Guðmundsdóttir, Bjarki Gíslason, Bjartmar Örnuson, Bríet Ósk Ólafsdóttir, Eiríkur Árnason, Elvar Örn Sigurðsson, Heiðrún Dís Stefánsdóttir, Hilmar Örn Jórunnarson, Kolbeinn Höður Gunnarsson, Melkorka Ýrr Yrsudóttir, Ormar Agnarsson, Rakel Ósk Björnsdóttir, Rannveig Oddsdóttir, Rún Árnadóttir, Sunna Rós Guðbergsdóttir og Örn Dúi Kristjánsson. Þessi fjöldi meistara hjá félaginu hlýtur að bera öflugu starfi vitni sem ber að þakka þjálfurunum, Gísla, Unnari og Maríu.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA