• MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025

Hlaupið í blíðunni

Annað vetrarhlaup vetrarins fór fram í morgun í blíðskaparveðri, stillt veður og 10 gráðu hiti sem verða að teljast kjöraðstæður í nóvember. Þorbergur Ingi Jónsson nýtti tækifærið og jafnaði brautarmet sitt frá sama tíma í fyrra, hljóp kílómetrana 10 á 33:22, annar karla var Gísli Einar Árnason á 39:02 og þriðji var Finnur Dagsson á 41:19. Anna Berglind Pálmadóttir var fyrst kvenna á 40:35, önnur var Sigríður Björg Einarsdóttir á 46:51 og þriðja var Rachael Lorna Johnstone á 48:28.

Tíma allra sem hlupu og stöðuna í stigakeppninni má sjá hér.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA