Síðasta vetrarhlaup þessa vetrar fór fram í morgun við kjöraðstæður. Að hlaupi loknu voru veitt verðlaun til stigahæstu einstaklinga og liða. Í stigakeppni karla bar Helgi Rúnar Pálsson sigur úr bítum með 45 stigum, Finnur Dagsson var í öðru sæti með 40 stig og Ingólfur Gíslason í þriðja sæti með 34 stig. Í kvennaflokki sigraði Sigríður Einarsdóttir með 41 stigi, Sonja Sif Jóhannsdóttir var í öðru sæti með 38 stig og í þriðja sæti var Rachael Lorna Johnstone einnig með 38 stig.
Í liðakeppni sigruðu Hugmyndasnauðir með 29 stigum, í öðru sæti urðu Skjaldbökurnar með 16 stig og í því þriðja Morgunhænur með 13,5 stig.
Hér má sjá tíma úr öllum hlaupum vetrarins og úrslit stigakeppninnar.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.