Fremur fámennt var í hausthlaupi UFA sem fram fór í morgun og hefur veðrið trúlega haft eitthvað að segja, en heldur hvasst og napurt var þegar hlaupið fór fram. Tíu hlauparar létu veðrið samt ekki á sig fá og hlupu 10 km. Sævar Helgason kom fyrstur í mark á 41:09, annar karla var Guðjón Marteinsson á 42:08 og þriðji var Gísli Einar Árnason á 43:11. Í kvennaflokki kom Sigríður Einarsdóttir fyrst í mark á 44:52, önnur var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 46:13 og þriðja var Guðrún Nýbjörg Svanbjörnsdóttir á 48:58. Tíma allra hlaupara má sjá hér.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.