• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Hafdís og Kolbeinn að gera það gott!

 hafdis_og_kolbeinn_640Nú er fjörið byrjað á Smáþjóðaleikunum og kepptu Kolbeinn og Hafdís í dag. Þau stóðu sig bæði mjög vel. Kolbeinn stórbætti tímann sinn í 100m hlaupi þegar hann kom þriðji í mark í úrslitahlaupinu á 10.84 sek í logni. 

Þá er hann kominn í úrslit í 400m hlaupi á 48.50 sek. Hafdís varð einnig í þriðja sæti í 100m hlaupi þegar hún hljóp á 12.00 sek sléttum. Það er skemmtileg tilviljun að bæði voru þai 1/100 frá silfrinu. Hafdís hljóp á mun betri tíma í undanrásum en þá rann hún skeiðið á 11.88 sek í meðvindi +0,5 m/sek, sem er fjórði besti tími íslenskrar konu í 100m hlaupi. Hafdís náði sér ekki alveg á strik í langstökkinu miðað við árangur hennar um síðustu helgi þegar hún setti Íslandsmetið 6.36m, en hún stökk lengst 6.06m og dugði það í 2. sætið og vantaði aðeins 2 cm til að ná gullinu, frábær árangur samt. Annars má fylgjast með úrslitunum hér


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA